Vertu velkomin á heimasíðuna okkar. Við erum systkinin Hrafnhildur,Grímur og Nökkvi
Mamma og pabbi hafa ákveðið að læsa myndaalbúminu, lykilorðið er nafnið á því sem pabbi var að æfa þegar hann var lítill??? Ef þið vitið það ekki þá getið þið sent póst á mömmu.
Hrafnhildur kom í heiminn þann 11 maí 2003, hún átti fyrst að koma á afmælisdaginn hennar mömmu sinnar þann 7 maí en ákvað að koma 4 dögum seinna:) Hún fæddist á Hvidovre Hospital í Danmörku og var 3853 gr. og 51 cm. Hún fæddist með pínu hár en þó aðallega sítt að aftan:) Hún er O A í Egholmskolen i Vallensbæk.
Grímur fæddist þann 4 október 2006. Hann fæddist líka á Hvidovre Hospital á nákvæmlega sömu fæðingarstofu og Hrafnhildur.
Hann var svolítið að flýta sér í heiminn, kom 15 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og fæðingin tók tæpa tvo tíma. Hann vó 3968 gr. og var 55 cm langur. Hann varð frekar gulur og var soldin tíma að jafna sig og ná upp fæðingarþyngdinni sinni, en er nú orðinn hress og dafnar vel. Hann er á leikskólanum Stien og er mjög ánægður þar.
Nökkvi fæddist þann 30 október 2009, tveimur dögum fyrir áætlaðan fæðiingardag. Hann fæddist á Hvidovre hospital og vó 3948 gr. og var 54 cm. langur.
Mamma okkar heitir Elín('81) og hún er að læra hjúkrunarfræði og pabbi okkar heitir Örn Ingi('79) og hann er verkfræðingur. Við búum í Vallensbæk á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Þessi síða er gerð fyrir vini og ættingja á Íslandi svo þeir geti nú fylgst með okkur héðan úr Baunalandi:)